Ef hestakosturinn ykkar er kominn í keppnisfært ástand eftir hestapest þá vill stjórn Dreyra hvetja ykkur til að taka þátt í hestaíþróttakeppninni á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi sem fram fer eftir rúma viku.
Okkar stórefnilega hestakona, Svandís Lilja Stefánsdóttir (15 ára) var valin úr stórum hópi ungmenna og fer fyrir Íslands hönd á Heimsmeistarmót Ungmenna nú í sumar.
Sunnudaginn 30. maí nk. milli kl. 13.oo og15.oo hefst móttaka og skráning hrossa í aðalbeitarhólf nr. 4 innan við Berjadalsá. Beitarnefndarmenn verða við hliðið.
Öll hlið á aðalbeitargirðingum verða læst allt beitartímabilið þ.e. til næstu áramóta.